
Leikhópurinn úr Feigð (2016) eftir Ármann Guðmundsson.
Myndin sýnir rautt á hvítu hve erfitt getur verið að taka þátt í að setja upp leiksýningu. Svo var líka niðursetningur.
Upphafið
Saga Hugleiks verður ekki sögð án þess að byrja á byrjuninni... En hver veit hvernig byrjunin var?
Sagan segir að í VW bjöllu hafi nokkrar manneskjur talað um að stofna Leikfélag Íslands, hvorki meira né minna. Enda hafa flestar bestu hugmyndir seinni tíma fæðst á rúntinum!
Í febrúar 1983 var fyrsti fundur Hugleiks haldinn í útibúi Borgarbókasafnsins í Bústaðarkirkju. Þar mættu 20 manneskjur, flest þeirra sjúkraþjálfarar og félagsráðgjafar!
Smá bilun…
Hugleikur hefur byggt upp mikið gagnasafn um starfsemi félagsins. Sá fróðleiksbrunnur glímir sem stendur við tæknilega drauga – en særingamenn eru að störfum við að kveða þá niður.
Þjóðsöngur Hugleiks
Þegar ég finn af þessu bragð
þá fer mér að hlýna,
eins og þú legðir ullarlagð
ofan á sálu mína.
Situr einn og segir frá,
sveitist við að ljúga.
Annar hlustar hrifinn á
og hamast við að trúa.
Sitja þar við sama borð
sex, og enginn lýgur.
Skemmtilegt og skrýtið orð
er Skólavörðustígur.
Lag: Björgvin Guðmundsson
Texti: Freysteinn Gunnarsson
Afrek og mont
Árið 2010 var söngleikurinn Rokk valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin og sýnd tvisvar í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Höfundar voru Ásta Gísladóttir, Júlía Hannam, Sigurður H. Pálsson og Þórarinn Stefánsson. Höfundur tónlistar var Eggert Hilmarsson og samndi hann einnig söngtexta ásamt höfundahópinum.
Leikstjórar voru Þorgeir Tryggvason og Hulda Hákonardóttir.
Á þrítugasta afmælisári Hugleiks var söngleikurinn Stund milli stríða eftir Þórunni Guðmundsdóttur settur upp í Tjarnarbíói í leikstjórn Jóns St.Kristjánssonar. Sú sýning var valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin leikárið 2013-14 og sýnd í Þjóðleikhúsinu vorið 2014.
Þórunn (eða doktor Tóta), sem hefur verið virkur félagi í Hugleik frá árinu 1997, skrifaði síðar framhald af Stund milli stríða. Framhaldsverkið hét Gestagangur og var sett upp vorið 2019. Sem kennari í MÍT hefur Þórunn einnig sett upp nokkrar óperur í samstarfi við Hugleik.
Nafnið
„Svo voru þau einhverntíman heima hjá Ingibjörgu Hjartar að ákveða nafnið á leikfélaginu þegar Hugleikur Dagsson, þá ca 2 ára hljóp yfir stofugólfið og Imba segir: Ekki vera með læti Hugleikur minn. Þá var ekki aftur snúið, fundarmenn litu hver á annan og sögðu einum rómi:
Auðvitað heitir félagið Hugleikur!“
Stiklað á afskaplega stóru…
Stuttverkadagskrár