Fjöllin vakna

Lífi blásið í þjóðsögurnar

Leikfélagið Hugleikur sýnir fjöruga og sprenghlægilega sýningu lauslega byggða á íslenskum þjóðsögum.

Sýnt í Hugleikhúsinu,
Langholtsvegi 109

Fjöllin vakna er ný og fjörug sýning, samin af leikhópnum undir handleiðslu Maríu Bjartar leikstjóra og Birgittu Bjarkar aðstoðarleikstjóra og textahönnuðar.

Verkið er lauslega byggt á íslenskum þjóðsögum og setur vel þekktar sögur í nýjan og skemmtilegan búning. Litríkar og gamansamar persónur leiða áhorfendur í gegnum sögur af tröllum, djáknum, göldrum, búfénaði og tilberasmjöri – svo eitthvað sé nefnt.

Að Hugleikskum hætti eru þrælskemmtileg söngatriði í sýningunni eftir Loft S. Loftsson, Þorgeir Tryggvason og Ármann Guðmundsson. Þeir tveir síðastnefndu skipa hljómsveit sýningarinnar sem kallar sig Kári & Korriró.

Þetta er sýning fyrir allt áhugafólk um leikhús og þjóðararfinn. Sýningartímabilið er knappt og miðar seljast hratt – þannig að ekki hika.

Miðaverð

Fullorðnir: 3.500 kr.
Börn 12 ára og yngri, öryrkjar og 70 ára og eldri: 2.000 kr.

Sýningardagar

  • 19. mars – kl. 20:00

  • 20. mars – kl. 19:00 og 21:00

  • 22. mars – kl. 19:00 og 21:00

  • 26. mars – kl. 20:00

  • 27. mars – kl. 19:00 og 21:00

  • 28. mars – kl. 19:00

  • 28. mars – kl. 21:00

Bókaðu strax miða til að upplifa kvöld fullt af hlátri, þjóðsögum og tónlist með Hugleik.